|
Ýmsir skemmtilegir tenglar
|
21.02.2008 18:59:42 / Ragnhildur
Þar sem þetta nýja kerfi hér á Blogcentral er EKKI að gera sig og bloggið mitt er allt komið í klessu (myndir farnar út og fleira), þá ákvað ég að gera eins og svo margir aðrir og kveðja Blogcentral for good.
Ég er semsagt komin með nýtt blogg!
www.123.is/ragnhildur
Tékk it .
»
13.02.2008 16:10:43 / Ragnhildur
...þetta er spurning sem ég fékk um daginn. Ég varð frekar
vandræðaleg, því einhverra hluta vegna hélt ég að þetta væri ein af
þessum spurningum sem maður ætti að vita, en veit samt aldrei. En
hvað um það, ég þurfti svar við þessari spurningu á næstu dögum
(var að fylla út eitthvað umsóknareyðublað).
Eftir að hafa spurt nokkra vini mína hvort þau vissu í hvaða
blóðflokki þau væru, komst ég að því að það var alls ekkert
skammarlegt að ég hafði ekki vitað þetta. Það vita þetta greinilega
mjög fáir á mínum aldri.
Ég byrjaði auðvitað á því að spurja mömmu. Hún
hafði ekki hugmynd frekar en ég og fór að koma með einhverjar
erfðafræðilegar kenningar sem gáfu mér ekkert svar. Ég ákvað þá að
hringja á sjúkrahúsið, þau hlytu nú að vita það. Þar voru engar
skrár um það í hvaða blóðflokki ég væri, ekki einu sinni í neinum
skýrslum frá fæðingu minni eða neitt! Loks, eftir mikla leit, var
mér sagt að ég þyrfti að fara í "blóðflokkamælingu" til að komast
að þessu, s.s. blóðprufa sem síðan er rannsökuð. Já, og það tekur
viku að fá útúr því! VIKU?! Hversu flókin rannsókn getur þetta
eiginlega verið...
Allavega, í blóðprufu fór ég og bíð nú
eftir niðurstöðunum.
En ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa sögu hingað inn, er að ef
einhver getur sagt mér hvort þetta sé alveg eðlilegt? Að það séu
engar skrár um það í hvaða blóðflokki ég er? Hvað ef ég lendi í
slysi og þarf blóðgjöf? Er þá bara ,,Nújæja, hún hefur ekki farið í
blóðflokkamælingu. Ekkert blóð fyrir þig elskan. Jajú, við látum
hana bara hafa AB og sjáum hvort hún deyr eða ekki." Ok, ég veit að
þetta er ekki svona. EN HVAÐ ER ÞÁ GERT? Kannski er þetta
ljóskulegar pælingar sem allir vita svar við nema ég..
Fyrir utan blóðflokkapælingar er voðalega lítið að frétta af mér.
Það helsta er:
- Konni var að fara suður í dag og fer til Skotlands á morgun og
verður þar þangað til á þriðjudaginn... Ég á eftir að sakna
hans..
- ÉG SAKNA BRYNHILDAR!!!
- Pabbi og Vicki komu um daginn í heimsókn, gaman að sjá
þau!
- Ég fór á fyrsta þorrablót lífs míns með Konna og fjölskyldu,
skemmti mér þrusuvel.
- Ég er alveg í kleinu því ég veit ekki hvað ég ætla að gera
eftir fjölbraut!
Jæja.. hér kom allavega loksins blogg.
Ragnhildur - blóðflokkaóflokkuð
»
10.01.2008 15:30:10 / Ragnhildur
"...Veitingastaðir og barir eru meðfram ströndinni og við höfnina, og drottning næturinnar er "Barstrætið" þar sem dansinn dunar til morguns. Í fallega uppgerðum húsum eru barir, veitingastaðir og dansstaðir á báðar hendur svo langt sem augað eygir..." Já, svona hljómar lýsingin á komandi djammi. Ég var nefninlega að enda við að panta útskriftarferðina okkar. Þann 27. maí á slaginu 08:20, mun 15 manna hópur af lífsglöðum unglingum frá FNV halda af stað frá Keflavík og til Tyrklands, nánar tiltekið Marmaris. Þar munum við sleikja sólina í 14 daga, drekka öl og hanastél, djamma og djúsa og jafnvel gera e-ð af viti stöku daga. Ég er ekki frá því að langþráður draumur sé að rætast; Að fara til sólarlanda með vinum mínum (vantar þó sárlega nokkra). 
Ég er kannski farin að hlakka fullmikið til.... Hótelið sem við verðum á Langaði bara að segja frá þessu ! Annars er ekkert að frétta svosem. Var orðin afskaplega þreytt að sjá þennan geðveikislega svip á Röggu þegar ég fór á síðuna. Skólinn á fullu, FÁRÁNLEGA strangar mætingareglur hafa þar litið dagsins ljós. Maður kemst sko ekki upp með neina leti þessa önnina.. Jólin og áramótin voru góð! Jólin með svipuðu sniði og undanfarin ár, en áramótin ekki, þar sem þeir var eytt annarsvegar í brúðkaupsveislu og hinsvegar hjá Konna. Tók ekki neinar myndir, en ég tók þó myndir í árlegu partýi hjá Davíð Orra annan í jólum. Er búin að setja þær inn, ykkur til ánægju og yndisauka. Endilega athugið málið..  Ragnhildur - spennt fyrir útskriftarferð!
»
17.12.2007 22:53:58 / Ragnhildur
Nýjar myndir!! 
»
08.12.2007 00:34:55 / Ragnhildur
Vá hvað það er langt síðan að ég bloggaði! öss.. Það hefur mjög margt gerst í mínu lífi síðan síðast, hér eru nokkrir punktar... - Ég fór í klippingu! Ernu hárgreiðslukonu vantaði hármódel og ég og Arna ákváðum að slá til. Mikil breyting á okkur báðum, en ég held samt að Arna hljóti vinningin fyrir að vera meira breytt. Þó svo að ég sakni vissulega gamla hársins stöku sinnum, þá er ég samt nokkuð sátt við það nýja. Sjáum nú til...
  - Svo var það náttúrulega leikritið sem tókst svona líka vel! Það var nokkuð vel sótt og allir hrósuðu því mikið. Það fannst mér afskaplega gaman. Partýin voru ágæt, en þó sístu leikritapartýin sem ég hef farið í. Ég held að ekkert eigi eftir að toppa partýin frá því í fyrra. Þau voru SNILLD. Var með cameruna í frumsýningarpartýinu, hér koma nokkrar:
aha.. svo er ýmislegt búið að gerast annað. Djamma eitthvað (þó heldur minna en venjulega), fór á Akureyri, við leigðum okkur bústað nokkur saman, prófin byrjuð... Svo kannski það helsta og besta er að ég náði mér í kæró . Jólin nálgast og ég hlakka ótrúlega til að fá Stefán heim. Ég sakna EmmaBró. Þetta verða örugglega frekar spes jól því við verðum bara þrjú! Amma og afi verða ekki hjá okkur í þetta skiptið og pabbi er náttúrulega í DK. En ég efast samt ekki um að það verði nice, enda eru þetta tvær bestu manneskjur í heiminum. eeen já. Ég hef þetta stutt núna. Er orðin afskaplega þreytt, og orðin þreytt á því að pikka á lyklaborðið. Enda ekki búin að gera annað í dag (er búin að skrifa 9 bls dagbók í ensku í allan dag). Biðst afsökunar á blogglægðinni, ég reyni að vera duglegri við þetta á næstunni. Ragnhildur - alveg laus við jólaskapið ennþá?
»
05.11.2007 23:10:35 / Ragnhildur
Tenerife búið. Bömmer. Lítil sól. Bömmer. Lítil brúnka. Bömmer. Mikill lærdómur. Bömmer. En það var samt mjög gaman! Gleði.  
Ský og aftur ský... og ég í fílu í sólbaði í náttslopp í engri sól! Þarna lágum við mæðgur og biðum eftir að sólin myndi láta sjá sig. En engu að síður var þetta mjög skemmtileg verð og ágætlega mikið verslað, þó aðallega að skóm. Lítið frásögufærandi þangað til bara um helgina. Með eindæmum skemmtileg helgi. Föstudagurinn byrjaði hjá örnu þar sem við kjöftuðum frá okkur allt vit. Kíktum í doddamálarapartý og svo á barinn.  
Laugardagurinn var hinsvegar nokkuð öðruvísi en aðrir laugardagar, því okkur var boðið í Halloweenpartý hjá Ingu Birnu. Við tókum okkur til og klæddum okkur upp: ...og héldum á vit ævintýranna! Þegar til Ingu var komið var enginn í búningum, en Inga og Vala skelltu sér samt í búninga þegar þær sáu okkur. 
Bróðir minn og co. voru allir í bænum því þeir höfðu verið að steggja Gústa fyrr um daginn. Þeir komu allir til Ingu og rosa fjör. Síðan var haldið á barinn og fengum við mörg augnráð, enda heldur skuggalegri en gengur og gerist. 
 
Jájá.. gaman af þessu. Verst að ég þurfti að mæta í vinnu eldsnemma þessi kvöld svo maður var svosem frekar slakur. En það kemur helgi eftir þessa, og allt stefnir í þrusu helgi næst! Já.. ég ákvað að setja e-ð hérna inn því ég hef ekki látið í mér heyra of lengi. Það eru hellingur af nýjum myndum hér til hliðar sem hægt er að dunda sér við að skoða á góðum degi. Gaman af þessu öllu saman.. p.s. Frumsýning á leikritinu verður 14. nóvember. Allir að kíkja
»
19.10.2007 18:59:04 / Ragnhildur
Hvað haldiði?! Hjólkopparnir eru farnir ! Ég veit ekki hvort það gleðji ykkur eins mikið og mig, but I sure am glad. Kommentalægð hefur gripið landann. Þá er ég nú ekki bara að tala um á minni síðu, heldur eru nokkrar síður sem ég fer reglulega á að þjást af sama vandamáli. Mér finnst þetta háalvarlegt vandamál sem laga þarf. Tökum nú höndum saman og kommentum! Smá útúrdúr. Nú kem ég mér að efninu. Uppskeruhátíðin var síðustu helgi og hún var S N I L L D! Ég fer bara að brosa við tilhugsunina. Góður matur, góð atriði, góð stemning, gott fólk.. getur það klikkað? Neibb.. Það sem ég hafði mest gaman af var eftirfarandi: Fulli gæinn sem enginn þekkti, hann vakti mikla lukku. Hinn fullu útlenski gæinn sem enginn þekkti, hann var jú skemmtilegur en jafnaðist þó ekki á við þann fyrrnefnda. Ræðan hans Gústa var snilld. Lýsingin hans Snorra á sjálfsmarkinu sínu var e-ð sem ég hefði viljað taka upp. Annars var ekkert leiðinlegt, en þetta var svona það helsta sem varð þess valdandi að ég vaknaði með strengi í maganum vegna hláturs. Hér eru nokkrar myndir sem Ómar Bragi tók. Ég vona að mér sé óhætt að birta nokkrar þeirra hér.  
Nokkrir strákar mættu í búningum. Bróðir minn var einn þeirra, en hann var íslensk fótboltabulla. Björn Ingi var t.d. sjóari, Stefán Arnar var zorró, Haukur pólskur verkamaður og fleira og fleira.. Ingvi Hrannar ætlaði að vera vínberjaklasi en beilaði. Ingvi Ingvi Ingvi.. 
Haldiði ekki að ég hafi flutt pistil. Þetta er reyndar afskaplega bjánaleg mynd af mér, en það verður nú að hafa það. Ég flutti semsagt pistil sem ég og Brylla sömdum um sumarið. Það var hlegið slatta svo ég stend í þeirri trú að hann hafi heppnast nokkuð vel.  
Ég og Brynhildur að meikaða í myndatökunum.. 
Vanda var kosin best, María var efnilegust, Svava sýndi mestar framfarir, Hjördís var markadrottning og Halla með bestu ástundun. Til hamingju stúlkur ! En jæja.. nóg af þessu. Ég er að fara til Tenerife eftir 4 daga!! JEIJ. Mig klæjar í puttana mig langar svo að fara að byrja að pakka öllum hlýrabolunum og þessum fötum sem maður notar svo sjaldan. Ég fer með tölvuna mína út, því ég þarf eflaust að læra e-ð úti og það er netsamband á herbergjunum. Svo það er aldrei að vita nema að það komi e-ð blogg í útlandinu. 
úhúhú Hótelið sem við verðum á. Þetta verður osom! Jæja, held að þetta sé orðið gott í bili. Takk fyrir mig!
»
10.10.2007 11:26:01 / Ragnhildur
ÉG ER BÚIN Í PRÓFUNUM!!!! Djamm?
»
08.10.2007 15:14:27 / Ragnhildur
Jææja.. 3 af 4 prófum búin. Síðasta prófið er á miðvikudag og svo er ég bara komin í frí fram á næsta mánudag! Það þykir mér ekki slæmt.. Helgin var snilld. Að sjálfsögðu gat ég ekki staðist það að kíkja út á laugardaginn. Þeir sem létu blekkjast í síðasta bloggi þekkja mig greinilega ekki nógu vel! Allavega, það var staffapartý í íbúðinni fyrir ofan bakaríið, og VÁ hvað það var gaman. Allir voru að fara af kostum þarna, þá sérstaklega verð ég að nefna Róbert og Raggý. Ég tók nokkrar góðar myndir sem ég ætla að deila með ykkur; 
Thelma og Karsten vs. Trond og Áslaug í spurningakeppni a la Róbert. Áslaug og Trond unnu. 
Klassískur leikur.. mjög fyndinn þegar fullt fólk á í hlut! 
oh ég hata að þessi mynd sé blurry! Allavega, hér er TÍNSUPÓÓÓS 
Raggý kann sko að vera tínsa 
Greyið Snorri þurfti að vinna um nóttina, fór ekkert heim eftir barinn heldur bara beint í vinnuna! 
Svo er það bara myndIN! Karsten og Raggý að meikaða á dansgólfinu Svo var skotist í næsta hús á Pallaball sem var mjög svo gaman. Fullt af fólki og Palli klikkaði ekki frekar en fyrridaginn. Enjá, ég ætlaði bara að skella þessum myndum hérna inn. Ef þú heyrðir einhverntíman að það væri leiðinlegur mórall í bakaríinu... Bull og vitleysa Það sannaðist þetta kvöld. Alger snilld.. Það eru fleiri myndir á facebook. p.s. ný skoðanakönnun. ennþá meira p.s. Það er frekar nýlegt blogg hér fyrir neðan..
»
05.10.2007 22:56:25 / Ragnhildur
Ég er orðinn afskaplega þreytt á því að klofið á Örnu taki alltaf við mér þegar ég fer inn á þessa síðu, svo ég ætla að rita hér niður örfá orð. Prófavikan er byrjuð, mér og öðrum til mikils ama. Ég var í íslenskuprófi í dag og held ég að ég sé að fara með rétt mál þegar ég segi að ég hafi aldrei verið svona stressuð fyrir íslenskupróf. Ég var næstum því eins stressuð og Harpa, en hún hringdi 3 sinnum í mig klukkutímanum fyrir próf, sem endaði með því að hún kom hingað og við hjálpuðumst að með að læra. Höfðum nú ekki mikið uppúr því, heldur töpuðum aðeins orku í það að fletta 175 blöðum fram og aftur, hrista hausinn og dæsa. En prófið kom, hvort sem okkur líkaði betur eða verr og jaa.. ég held að mér hafi gengið ... ágætlega. Meira þori ég ekki að segja. Páll Óskar Hjálmtýrsson mun stíga á svið á Mælifelli annað kvöld, og að öllum líkindum mun ég ekki verða viðstödd þann langþráða viðburð. Nei, ég verð heima hjá mér að pikka tölustafi í reiknisvél, reikna út logra eða jafnvel læra orð eins og m. sternocleidomastoideus, eða jafnvel bara m. semimembranosus. Mér finnst nú bara að það ætti að fá að koma fram á einkunnaspjaldinu mínu "þessi slaka einkun er að sökum dansleiks undir stjórn Páls Óskars", þá verður skólastjórinn í háskólanum sem ég sæki um í bara: ,,Nú já já okey, það hlaut að vera. Hún fær þá inngöngu úr því að svona var mál með vexti". Ekki slæmt ha.. ohh.. á ég að fara á ball? Ég er alveg í kleinu.. En uppskeruhátíðin er allavega þarnæstu helgi.. obbobboj hvað ég hlakka til! Talandi um það, langar ekki einhvern að kaupa happdrættismiða?? Tindastóll er semsagt að selja happdrættismiða sem verður síðan dregið út á uppskeruhátíðinni. Veglegir vinningar í boði, s.s. utanlandsferð og ýmislegt fleira.. ég er með 5 stykki og vil gjarnan ekki sitja uppi með þá Svo ef þig langar í happdrættismiða, þá bara call me! Ég lofa að ég er með vinningmiðana....... Ég er farin að verða syfjuð, sem er ekki góðs viti því ég á eftir að læra mikið mikið. Held að ég sé hætt að þrjóskast við og ætla að opna LOL bókina. Hey!
..og eitthvað af þessum 200 manns sem koma hingað á dag, ykkur er alveg óhætt að kommenta! Ert þú á leiðinni á Papana þarnæstu helgi? Jafnvel á uppskeruhátíðina? ...langar þig ekki geðveikt í happdrættismiða? P.s. enn stækkar bloggheimurinn. Inga Birna, Vala Hrönn og Stefán bróðir eru komin með blogg! www.sambylid.bloggar.is Ragnhildur - tek við lærdómnum með bros á vör ......
»
01.10.2007 23:57:25 / Ragnhildur
Nýjar myndir!  Arna Beibí

Allir á balli! Á skalanum 1-10, hvernig fannst þér á ballinu? - Ragnhildur -
»
24.09.2007 21:50:13 / Ragnhildur
Blog.central er ekki að meikaða þessa dagana. Þetta er núna þriðja tilraunin mín til að blogga og við skulum vona það takist. Ég tel að það sé allra hagur, því þá meiðist enginn. Ég elska komandi helgar. Ef horft er framhjá óþarflega miklu heimanámi, og vinnu stöku sinnum, þá boða næstu helgar ekkert nema gott! Sjáum nú til.. - Næsta helgi er helgin sem maður bíður alltaf eftir í ár; Laufskálaréttarball! Vona að það fari betur en síðast þar sem ég varð brjáluð því hællinn á nýju skónnum mínum brotnaði
- Helgin eftir það er staffapartý í bakaríinu og PALLI verður á Mælifelli. Geeeðveikt..
- Loks er það uppskeruhátíðin í fótboltanum .. shhii hvað ég hlakka til! Sama kvöld verður ball með Pöpunum á Mælifelli. Gerist það betra?
- Viku seinna held ég á vit ævintýranna. Tenerife þann 24. október með mömmu á 5 stjörnu hóteli. Það verður osom!
óhóhójá.. Inn á milli þessara gleðiviðburða er reyndar prófavikan. En sælan endist víst ekki endalaust, eða hvað? Æfingar í leikritinu eru að hefjast, en nú á að setja upp Grease. Hvorki meira né minna. Ég fékk það hlutverk að vera sýningarstjóri, enda fer gribbum eins og mér ört fækkandi, eins og Friggi orðaði það. En ég tók því hlutverki feginshendi, enda eru leikritapartýin þau allra bestu. Þeir sem hafa upplifað þau eru eflaust sammála mér, en ég hef verið með í leikritastússinu frá því ég byrjaði í FNV og alltaf fundist það jafn gaman. Jæja. Segi þetta gott! Heyrðu já, haldiði ekki að Pálmi sé farinn að blogga aftur í danaveldi! Linkurinn er hér til hliðar.. Hann þykist kunna að þvo í þvottavél núna. Aldrei. Sakna þín litli  Ég sakna líka Signýjar afskaplega mikið. Það er svo langt síðan að ég hef síðan hana! En hún kemur um helgina að djammaaa.. eins og vonandi allir þeir sem eru að lesa þetta. Já, líka þið sem flúðuð suður. Ef þú ert Skagfirðingur, þá berðu þá skildu að fara á Laufskálaréttarball! Svo einfalt er það bara.. Bæææjó ! Ragnhildur - reddí tú partí . p.s. Ætti ég að taka myndavélina með á djammið á laugardaginn?
»
17.09.2007 23:01:48 / Ragnhildur
Heyjó.. nýjar myndir frá helginni! Tékkaðu  SNILLDAR HELGI  
kveðja- Ragnhildur - Alltaf með kameruna!!
»
04.09.2007 23:15:44 / Ragnhildur
Já kominn tími til að blogga eftir þetta
innihaldsmikla blogg mitt sem kom hér síðast. Það fær mig samt
alltaf til að brosa!
Það hefur ýmislegt á daga mína drifið undanfarið. Skólinn
byrjaður og ég er í 22 einingum, busavikan búin og kreisí djamm á
föstudaginn. Það var samt geðveikt stuð þá!

ooo.. litlu grey 

Guðrún Eik bauð okkur Signýju í Team Viking partý heima hjá
henni og Óskari. Þar vorum við klæddar í tilheyrandi boli og skipað
að fara á ball í bolunum 

jebbjebb..
Pálmi er farinn Ég hataða.. En hann kemur aftur á föstudaginn
En svo fer hann aftur í fjóra mánuði!! Ingvi greyið húkir bara
heima eða á sjúkrahúsinu með lungnabólgu og þurfti að seinka
ferðinni sinni út. Litla grey. Fyrir þá sem ekki vita, þá eru þeir
að fara í lýðháskóla í DK í fjóra mánuði.
Ég er búin að lenda svolítið í því í sumar að
vera vakin á mjög pirrandi hátt. Það er alveg merkilegt hversu
ótrúlega pimaður getur orðið allan daginn ef maður er vakinn á
rangan hátt. Hér koma nokkrar agalegar aðferðir við að vakna, að
mínu mati allavega. Segðu mér endilega hvað þér finnst.
- Það er hávær húsfluga í herberginu þínu
og hún vakti þig með suðinu. Þú opnar gluggan en hún fattar ekki að
fara út. HEIMSKA FLUGA! Þú ákveður að reyna að þola hljóðið og
lokar augunum, fast. Skyndilega fer flugan að hafa meiri áhuga á
andlitinu þínu og klessir á það reglulega. Nú er komið nóg! Þú nærð
í blað og drepur hana. GLAÐVAKNAÐIR fyrir vikið og getur ekki
sofnað aftur.
- Það er helgi og þú færð LOKSINS tækifæri til að sofa út.
Klukkan er hálf tíu þegar þú vaknar við það að
nágranninn er byrjaður að slá garðinn. HVAÐ
MEINAR HANN?! Þú lokar glugganum. Enn of hátt. Þú gramsar í skúffu
inni á baði og til allrar hamingju finnuru þér eyrnatappa. Treður
þeim í eyrun á þér. ...DEM hvað þetta er óþægilegt! Tekur þá aftur
út. Enn sama helv.. hljóðið. Þú sættir þig við þetta. Ferð á
fætur.
- Enn er helgi. Þig langar að sofa út. Klukkan er 10. Þú vaknar
fyrst við það að það glamrar í glösum og diskum frammi. Mamma er
greinilega vöknuð. Sofnar aftur. Vaknar aftur korteri seinna við
það að hún er farin að ryksuga, og útvarpið
er í botni. Frábært! Ryksugan skellur á hurðinni þinni. Þú ríkur
fram úr rúminu í bræðiskasti og spyr hvort hún geti ekki geymt
þetta í eins og klukkutíma! Svarið sem þú færð, tengist því að þú
sért ekki nógu dugleg/ur að hjálpa til á heimilinu og það sé líka
alveg kominn tími til að vakna. (Þetta er ekki
illa meina mamma
þú ert afskaplega dugleg)
- Svipað tilvik og nr. tvö, nema nú er nágranninn ekki að slá.
Nei, nú er krakkinn hans að halda uppá afmælið
sitt sem hófst kl. 10. Fullt af öskrandi krökkum eru
hlaupandi og hlæjandi í garðinum við hliðina og einn gengur meira
að segja svo langt að hlaupa í garðinn þinn og banka á gluggan. Þú
reynir ekkert, veist að þetta er vonlaust og ferð fram
úr.
- Síðast en ekki síst. Þú ákveður að leggja þig í eyðunni sem þú
fékkst því einn kennarinn var veikur. Lætur
símann við hliðina á þér, svona in case
einhver mikilvægur skildi hringja. Þú ert nýsofnuð þegar síminn
hringir fyrst. Þetta er mamma að minna þig á að taka hakkið úr
frystirnum. Stendur upp, reddar því og leggst aftur. 15 mín seinna
hringir síminn aftur, það er e-r að spurja hvort hann megi fá far á
fótboltaæfingu, þú skellir á og sérð að þú ert líka með sms. Úff,
ÉG VIL SOFA! Þú setur símann á silent. Tveim klukkustundum síðar
vaknarðu og sérð eitt missed call. ...djöfullinn. Ég missti af
tannlækninum.
Einhver lent í þessu?
Einhver með eitthvað pirrandi til að bæta við?
»
30.08.2007 22:43:50 / Ragnhildur



 MacBook er skemmtileg..
. eitursvalt . ókei?
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|